Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

jæja

29. október 2007 klukkan 14:32
Já svakalega er ég duleg í þessu bloggi!

Allt gott að frétta.. komin rétt 28 vikur á leið og líður glimmrandi vel. Fékk í grindina í síðustu viku en það gékk til baka sem er bara gott:)

Mikil spenna er í gangi að fá litla kútinn í heiminn. En ég kannski næ ekki að hugsa eins mikið um þetta og ég hefði viljað þar sem ég er en í 100% vinnu og 100% skóla!  nóg að gera sko!

En skólinn gengur vel að ég held... kemur svo bara í ljós á næsta ári þegar einkunnir liggja fyrir. En ég verð ekki búin í prófum fyrr en 19.des! Dí ekki skemmtilegt en svona er þetta víst bara.

En þar sem ég á að vera að vinna ætla ég ekki að hafa þetta lengra í bili!

Jú eitt Til hamingju með afmælið elsku Harpa mín! knús og kossar héðan til þín!
Rakel Lúðvíksdóttir

Komin heim

26. júlí 2007 klukkan 11:37
Jæja þá er maður kominn kominn heim eftir vel lukkaða hringferð um landið!
Nenni ekki að blogga um hana þar sem Gísli Freyr gerði henni góð skil.

www.gislifreyr.blog.is

Kíkið á það.
Rakel Lúðvíksdóttir

Blogg fyrir Hörpu

18. júlí 2007 klukkan 00:42
Þar sem Harpan mín bað mig svona fallega um að blogga smá ætla ég að gera það!

Ég er ss. komin 13 vikur í dag(miðvikudag).
Allt gengur eins og í sögu.
Barnið stækkar og dafnar.

Fórum fyrir viku síðan í sónar og allt leit rosa vel út. Fór ég síðan í mína fyrstu mæðraskoðun á föstudeginum 13! sjálfan afmælisdaginn okkar hjóna. Hversu mikið meira rómó verður þetta! hehe.

Við fengum ss. langþráða jáið okkar 18. maí og getum ekki verið ánægðari með þetta! Loksins sagði óléttupróf já en ekki nei! Mikill léttir.
Fór í snemmsónar stuttu seinna og þar var kominn þessi fíni hjartsláttur og allt leit vel út.
Svo fórum við aftur núna á 12 viku og þá heyrði ég hjartsláttinn og fór nú bara að skæla þvílíkt kraftaverk sem þessi saklausu kríli eru!

Mér sjálfri líður rosa vel. Finn ekki fyrir neinu svona til að kvarta yfir. Ældi lítð þessar fyrstu 12 vikur og klígjaði við flestu með lykt og þá helst klósettum!  Mikið var nú gaman að vera í vinnu þessar vikur haha! Vonum bara að það batni. Svo kúgast ég í hvert sinn sem ég sting tannbursta upp í mig! En ég gæti ekki verið hamingjusamari!

Núna ætlum við að skreppa í tjald og kanski hótel líka í kringum landið. Ætlum að þræða að mestu austfirðina sem getur ekki klikkað og svo klára hringinn. Ætlum að vera ca. 10 daga.

Væri nú samt til í að vera að fara til útlandanna með Hörpu og Ísa en það bíður betri tíma kanski næsta sumar blikk blikk!

jæja nenni ekki þessu tuði meira. Vona að þetta uppfræði ykkur sem sáuð myndina af krílinu!



Rakel Lúðvíksdóttir

5 ár og endalaust gaman:)

13. júlí 2007 klukkan 08:36
Hér erum við fyrir 5 árum!
gift!

fallegt

og svona er staðan núna.......



























gaman!
kríli

Kraftaverk og endalaust yndislegt:):)
við ætlum sko að njóta dagsins!
Rakel Lúðvíksdóttir

Stúlka fædd

03. júlí 2007 klukkan 12:41
Sætust
Tómas bróðir og Guðrún voru að eignast litla stelpu í morgun að sögn föður og ömmu er hún ótrúlega fíngerð og sæt. Með fuuuulllt af svörtu hári!
Amman vill meina að hún hafi svip systur sinnar hennar Klöru Drafnar ekki leiðinlegt að líkjast svo fallegri stelpu;)
hún er 13 merkur og 51cm.
hlakka til að kíkja uppeftir til þeirra á eftir!

update... búin að fara á Selfoss og sjá perluna! Hún er alger draumur og foreldrarnir geta sko verið stoltir af henni:) Guðrún stóð sig eins og hetja og að hennar sögn var þetta ekkert já ekkert mál! híhí
Sæt
Rakel Lúðvíksdóttir

Kennó

25. júní 2007 klukkan 11:32
Komst inn í Kennó vúhúhú!!!
Rakel Lúðvíksdóttir

Nýr kaggi

18. júní 2007 klukkan 21:59
nýr bíll
Vorum að fjárfesta í ársgömlum svona bíl! bara flottur og æðislegt að keyra þessa kerru:)
Rakel Lúðvíksdóttir

Hæ hó og jibbí jeij og jibbía jeij

17. júní 2007 klukkan 12:39
Gleðilegan 17. júní!!!fáninn
Rakel Lúðvíksdóttir

Lítið eitt að gerast

30. maí 2007 klukkan 13:59
Ekkert að gerast.
Verið að gera við blokkina heima með tilheyrandi látum og skemmileg heitum:)
ég er að vinna og vinna og já vinna! en ég er komin í frí frá skúringum í bili!! ógisslega gaman!

Förum í sumarfrí um miðjan júlí og við ætlum að tja... vitum það ekki einu sinni sjálf!! haha. Gott plan ekki satt??
Rakel Lúðvíksdóttir

FRÓÐLEIKUR RAKELAR.....

26. apríl 2007 klukkan 22:27
vissir þú?...

að moskítóflugur eru með 47 tennur?
að Walt Disney var hræddur við mýs?
að 20% íbúa jarðar eru með erfðagalla sem veldur því að þeir fá ekki augntennur?
að 200 börn fæðast á hverri mínútu?
að Alfred Hitchcock var ekki með neinn nafla?
að hestar geta ekki kastað upp?
að þú brennir fleiri kaloríum þegar þú sefur en þegar þú horfir á sjónvarpið?
 og síðast en ekki síst,
að skjaldbökur geta andað með afturendanum?

já hressandi fróðleikur úr bókinn BLA BLA...
það er svona að vera ekki í skóla, þá getur maður eytt tíma sínum í svona fróðleik:)
Rakel Lúðvíksdóttir

Klukkan